Fyrri Kroníkubók 16:1–43
16 Örk hins sanna Guðs var nú borin inn og henni komið fyrir í tjaldinu sem Davíð hafði slegið upp fyrir hana,+ og færðar voru brennifórnir og samneytisfórnir frammi fyrir hinum sanna Guði.+
2 Eftir að Davíð hafði fært brennifórnirnar+ og samneytisfórnirnar+ blessaði hann fólkið í nafni Jehóva.
3 Auk þess gaf hann öllum Ísraelsmönnum, bæði körlum og konum, einn kringlóttan brauðhleif á mann, eina döðluköku og eina rúsínuköku.
4 Síðan skipaði hann nokkra Levíta til að gegna þjónustu frammi fyrir örk Jehóva,+ til að tigna,* þakka og lofa Jehóva Guð Ísraels.
5 Asaf+ fór með forystuna og Sakaría var honum næstur. Jeíel, Semíramót, Jehíel, Mattitja, Elíab, Benaja, Óbeð Edóm og Jeíel+ léku á hörpur+ og önnur strengjahljóðfæri. Asaf lék á málmgjöll+
6 og prestarnir Benaja og Jahasíel áttu stöðugt að blása í lúðra frammi fyrir sáttmálsörk hins sanna Guðs.
7 Þennan dag samdi Davíð í fyrsta sinn þakkarsöng handa Jehóva sem Asaf+ og bræður hans fluttu:
8 „Þakkið Jehóva,+ ákallið nafn hans,gerið afrek hans kunn meðal þjóðanna!+
9 Syngið fyrir hann, lofsyngið* hann,+hugleiðið* öll máttarverk hans.+
10 Segið stolt frá heilögu nafni hans.+
Hjörtu þeirra sem leita Jehóva gleðjist.+
11 Leitið Jehóva+ og máttar hans,leitið stöðugt áheyrnar* hans.+
12 Munið eftir máttarverkunum sem hann vann,+kraftaverkum hans og dómunum sem hann kvað upp,
13 þið afkomendur Ísraels þjóns hans,+þið synir Jakobs, hans útvöldu.+
14 Hann er Jehóva Guð okkar.+
Dómar hans gilda um alla jörð.+
15 Minnist sáttmála hans að eilífu,loforðsins sem hann gaf þúsund kynslóðum,+
16 sáttmálans sem hann gerði við Abraham+og eiðsins sem hann sór Ísak.+
17 Hann gaf Jakobi hann sem lög+og Ísrael sem varanlegan sáttmála.
18 Hann sagði: ‚Ég gef þér Kanaansland,+gef þér það að erfðahlut.‘+
19 Á þeim tíma voru þeir fáir að tölu,já, mjög fáir, og þeir voru útlendingar í landinu.+
20 Þeir reikuðu um frá einni þjóð til annarrar,frá einu ríki til annars.+
21 Hann leyfði engum að kúga þá+en þeirra vegna ávítaði hann konunga+
22 og sagði: ‚Snertið ekki mína smurðuog gerið spámönnum mínum ekki mein.‘+
23 Lofsyngið Jehóva, allir jarðarbúar!
Segið frá björgunarverkum hans dag eftir dag!+
24 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna,undraverkum hans meðal allra manna,
25 því að Jehóva er mikill og verðskuldar lof,hann er mikilfenglegri en allir aðrir guðir.+
26 Allir guðir þjóðanna eru einskis nýtir+en Jehóva er sá sem skapaði himininn.+
27 Hann er umlukinn tign og ljóma,+máttur og gleði er í bústað hans.+
28 Veitið Jehóva verðskuldað lof, þið ættir þjóðanna,lofið Jehóva fyrir dýrð hans og mátt.+
29 Veitið Jehóva það lof sem nafn hans á skilið,+komið fram fyrir hann með gjöf.+
Fallið fram fyrir* Jehóva í helgum skrúða.*+
30 Öll jörðin skjálfi frammi fyrir honum.
Jörðin* stendur stöðug, hún haggast ekki.+
31 Himnarnir fagni og jörðin gleðjist.+
Boðið meðal þjóðanna: ‚Jehóva er orðinn konungur!‘+
32 Hafið drynji og allt sem í því er,sáðlöndin fagni og allt sem á þeim er
33 og tré skógarins hrópi af gleði frammi fyrir Jehóvaþví að hann kemur* til að dæma jörðina.
34 Þakkið Jehóva því að hann er góður,+tryggur kærleikur hans varir að eilífu.+
35 Segið: ‚Bjargaðu okkur, Guð okkar og frelsari.+
Safnaðu okkur saman og frelsaðu okkur frá þjóðunumsvo að við getum þakkað heilögu nafni þínu+og lofað þig fagnandi.+
36 Lofaður sé Jehóva Guð Ísraelsum alla eilífð.‘“*
Og allt fólkið sagði: „Amen!“* og lofaði Jehóva.
37 Davíð lét síðan Asaf+ og bræður hans verða eftir frammi fyrir sáttmálsörk Jehóva. Þeir áttu stöðugt að gegna þjónustu frammi fyrir örkinni+ og sinna daglegum verkefnum sínum.+
38 Óbeð Edóm og bræður hans 68 voru hliðverðir og einnig Óbeð Edóm Jedútúnsson og Hósa.
39 Sadók+ prestur þjónaði ásamt öðrum prestum frammi fyrir tjaldbúð Jehóva á fórnarhæðinni í Gíbeon.+
40 Þeir áttu stöðugt að færa Jehóva brennifórnir á brennifórnaraltarinu, kvölds og morgna, og fylgja öllu sem stendur í lögum Jehóva sem hann gaf Ísrael.+
41 Hjá þeim voru Heman og Jedútún+ og hinir mennirnir sem höfðu verið valdir til að þakka Jehóva+ því að „tryggur kærleikur hans varir að eilífu“.+
42 Heman+ og Jedútún voru með þeim til að lofa hinn sanna Guð með lúðrum, málmgjöllum og öðrum hljóðfærum, og synir Jedútúns+ voru við hliðið.
43 Síðan fór allt fólkið heim til sín og Davíð fór einnig heim til fjölskyldu sinnar til að blessa hana.
Neðanmáls
^ Orðrétt „minnast“.
^ Eða „leikið tónlist fyrir“.
^ Eða hugsanl. „talið um“.
^ Orðrétt „eftir augliti“.
^ Eða hugsanl. „vegna ljómans af heilagleika hans“.
^ Eða „Tilbiðjið“.
^ Eða „Frjósamt landið“.
^ Eða „er kominn“.
^ Eða „frá eilífð til eilífðar“.
^ Eða „Verði svo!“