Síðari Konungabók 4:1–44
4 Eiginkona eins af sonum spámannanna+ hrópaði til Elísa og sagði: „Maðurinn minn, þjónn þinn, er dáinn og þú veist að hann óttaðist Jehóva.+ Nú er lánardrottinn kominn til að taka bæði börnin mín og gera þau að þrælum.“
2 Þá spurði Elísa hana: „Hvað get ég gert fyrir þig? Segðu mér hvað þú átt til heima hjá þér.“ Hún svaraði: „Herra, ég á ekkert til heima nema eina krukku af olíu.“+
3 Hann sagði: „Farðu út og biddu alla nágranna þína um tóm ílát. Fáðu eins mörg og þú getur.
4 Farðu síðan heim og lokaðu dyrunum á eftir þér og sonum þínum. Fylltu öll ílátin og settu þau til hliðar.“
5 Síðan gekk hún burt frá honum.
Þegar hún hafði lokað dyrunum á eftir sér og sonum sínum réttu þeir henni ílátin og hún hellti í þau.+
6 Þegar ílátin voru full sagði hún við son sinn: „Réttu mér annað ílát.“+ En hann sagði við hana: „Það eru engin eftir.“ Þá hætti olían að renna.+
7 Hún fór þá og sagði manni hins sanna Guðs frá þessu en hann svaraði: „Farðu og seldu olíuna og greiddu skuldir þínar. Þú og synir þínir getið síðan lifað á því sem verður afgangs.“
8 Dag einn fór Elísa til Súnem.+ Þar bjó mikilsmetin kona sem vildi endilega að hann borðaði hjá sér.+ Í hvert skipti sem hann átti leið hjá staldraði hann þar við og borðaði.
9 Eitt sinn sagði hún við manninn sinn: „Ég er viss um að maðurinn sem er vanur að koma við hjá okkur er heilagur guðsmaður.
10 Eigum við ekki að útbúa lítið herbergi uppi á þaki+ og koma þar fyrir rúmi, borði, stól og ljósastiku handa honum? Þá getur hann gist þar þegar hann kemur til okkar.“+
11 Dag einn kom hann þangað, fór upp í þakherbergið og lagðist fyrir.
12 Hann sagði við Gehasí+ þjón sinn: „Kallaðu á súnemsku+ konuna.“ Hann kallaði á hana og hún kom til hans.
13 Hann sagði við Gehasí: „Segðu við hana: ‚Þú hefur haft svo mikið fyrir okkur.+ Hvað get ég gert fyrir þig?+ Á ég að tala máli þínu við konunginn+ eða hershöfðingjann?‘“ En hún svaraði: „Nei, ég bý hér á meðal ættingja minna.“
14 Þá sagði Elísa: „Hvað get ég þá gert fyrir hana?“ Gehasí svaraði: „Hún á engan son+ og maðurinn hennar er orðinn gamall.“
15 Þá sagði hann strax: „Kallaðu á hana.“ Og hann kallaði á hana. Þegar hún stóð í dyragættinni
16 sagði hann: „Á þessum tíma að ári liðnu muntu halda á syni í fanginu.“+ En hún svaraði: „Nei, herra. Þú ert maður hins sanna Guðs! Ekki ljúga að mér.“
17 En konan varð barnshafandi og fæddi son á sama tíma að ári liðnu eins og Elísa hafði sagt.
18 Dag einn, þegar drengurinn var orðinn stálpaður, fór hann út til föður síns sem var með kornskurðarmönnunum.
19 „Æ, höfuðið á mér, höfuðið á mér!“ sagði hann aftur og aftur við föður sinn. Faðir hans sagði þá við þjón sinn: „Berðu hann heim til móður sinnar.“
20 Hann gerði það og drengurinn sat í kjöltu móður sinnar fram að hádegi. Þá dó hann.+
21 Hún fór upp, lagði hann á rúm guðsmannsins,+ lokaði dyrunum á eftir sér og gekk burt.
22 Síðan kallaði hún á eiginmann sinn og sagði: „Sendu mér einn af þjónunum og einn asna. Ég ætla að flýta mér til manns hins sanna Guðs. Ég kem svo strax aftur.“
23 En hann spurði: „Hvers vegna ætlarðu að fara til hans í dag? Það er hvorki nýtt tungl+ né hvíldardagur.“ „Hafðu engar áhyggjur,“ sagði hún. „Það er ekkert að.“
24 Síðan lagði hún á asnann og sagði við þjón sinn: „Flýtum okkur. Hægðu ekki á ferðinni nema ég segi þér.“
25 Hún lagði nú af stað og kom til manns hins sanna Guðs á Karmelfjalli. Þegar maður hins sanna Guðs sá hana í fjarska sagði hann við Gehasí þjón sinn: „Sjáðu! Þarna er konan frá Súnem.
26 Hlauptu á móti henni og spyrðu hana: ‚Hvernig líður þér? Hvernig líður manninum þínum? Og hvernig líður drengnum?‘“ „Okkur líður vel,“ svaraði hún.
27 Þegar hún kom til manns hins sanna Guðs á fjallinu greip hún um fætur hans.+ Þá kom Gehasí og vildi ýta henni frá. En maður hins sanna Guðs sagði: „Láttu hana vera því að hún er örvæntingarfull. En ég veit ekki hvers vegna því að Jehóva hefur haldið því leyndu fyrir mér.“
28 Þá sagði hún: „Bað ég þig, herra, um son? Sagði ég ekki: ‚Vektu ekki með mér falskar vonir‘?“+
29 Elísa sagði strax við Gehasí: „Bittu upp kyrtilinn um mittið,+ taktu stafinn minn og leggðu af stað. Ef þú mætir einhverjum skaltu ekki heilsa honum og ef einhver heilsar þér skaltu ekki svara honum. Farðu og leggðu stafinn á andlit drengsins.“
30 Þá sagði móðir drengsins: „Svo sannarlega sem Jehóva lifir og þú sjálfur lifir fer ég ekki nema þú komir með.“+ Elísa stóð þá upp og fór með henni.
31 Gehasí fór á undan þeim og lagði stafinn á andlit drengsins en ekkert hljóð heyrðist og hann sýndi engin viðbrögð.+ Þá sneri hann við á móti Elísa og sagði: „Drengurinn vaknaði ekki.“
32 Þegar Elísa kom inn í húsið lá drengurinn dáinn á rúminu hans.+
33 Hann gekk inn í herbergið, lokaði dyrunum og bað til Jehóva.+
34 Síðan lagðist hann upp í rúmið og yfir drenginn. Hann lagði munn sinn yfir munn hans, augu sín yfir augu hans og lófa sína yfir lófa hans. Þannig lá hann boginn yfir honum og líkami drengsins fór að hitna.+
35 Elísa gekk fram og aftur um húsið, lagðist síðan upp í rúmið og beygði sig aftur yfir hann. Drengurinn hnerraði sjö sinnum og opnaði síðan augun.+
36 Elísa kallaði á Gehasí og sagði: „Kallaðu á súnemsku konuna.“ Hann gerði það og hún kom inn til hans. „Taktu son þinn,“ sagði hann.+
37 Þá gekk hún til hans, féll til fóta honum og laut til jarðar. Síðan tók hún son sinn og gekk út.
38 Þegar Elísa kom aftur til Gilgal var hungursneyð í landinu.+ Einhverju sinni, þegar synir spámannanna+ sátu frammi fyrir honum, sagði hann við þjón sinn:+ „Settu stóra pottinn yfir eldinn og lagaðu kássu handa sonum spámannanna.“
39 Einn þeirra fór þá út í haga til að tína kryddjurtir. Hann fann villta vafningsjurt og tíndi villigrasker af henni þar til hann hafði fyllt yfirhöfn sína. Þegar hann kom aftur skar hann þau í sneiðar og setti í pottinn án þess að vita hvað þetta var.
40 Síðan var kássan borin fram fyrir mennina en um leið og þeir smökkuðu á henni hrópuðu þeir: „Dauðinn er í pottinum, þú maður hins sanna Guðs!“ Og þeir gátu ekki borðað hana.
41 Þá sagði Elísa: „Komið með mjöl.“ Hann henti því í pottinn og sagði: „Gefið mönnunum svo að þeir geti borðað.“ Nú var ekkert skaðlegt í pottinum.+
42 Maður nokkur kom frá Baal Salísa+ og færði manni hins sanna Guðs 20 byggbrauð,+ bökuð úr frumgróða uppskerunnar, og poka af nýju korni.+ Elísa sagði: „Gefðu fólkinu þetta að borða.“
43 En þjónn hans sagði: „Hvernig get ég gefið 100 mönnum þetta?“+ Elísa svaraði: „Gefðu fólkinu þetta að borða því að Jehóva segir: ‚Þeir munu borða og eiga afgang.‘“+
44 Þá bar hann þetta fram fyrir þá og þeir borðuðu og áttu afgang+ eins og Jehóva hafði sagt.