Opinberun Jóhannesar 22:1–21
22 Engillinn sýndi mér nú fljót lífsvatnsins+ sem rann kristaltært frá hásæti Guðs og lambsins+
2 eftir miðri aðalgötunni. Beggja vegna fljótsins stóðu tré lífsins sem báru ávöxt í hverjum mánuði, 12 sinnum á ári, og lauf trjánna voru þjóðunum til lækningar.+
3 Engin bölvun verður lengur til. En hásæti Guðs og lambsins+ verður í borginni og þjónar hans veita honum heilaga þjónustu.
4 Þeir munu sjá andlit hans+ og nafn hans mun standa á ennum þeirra.+
5 Nótt verður ekki til framar+ og þeir þurfa hvorki lampaljós né sólarljós því að Jehóva* Guð skín á þá+ og þeir munu ríkja sem konungar um alla eilífð.+
6 Engillinn sagði við mig: „Þessi orð eru áreiðanleg* og sönn.+ Já, Jehóva,* sá Guð sem veitti spámönnunum innblástur,+ hefur sent engil sinn til að sýna þjónum sínum það sem á að gerast bráðlega.
7 Ég kem fljótt.+ Sá sem fer eftir spádómsorðum þessarar bókrollu er hamingjusamur.“+
8 Ég, Jóhannes, er sá sem heyrði þetta og sá. Þegar ég hafði heyrt það og séð féll ég fram við fætur engilsins sem sýndi mér þetta, til að tilbiðja hann.
9 En hann sagði við mig: „Ekki gera þetta! Ég er bara samþjónn þinn og bræðra þinna, spámannanna, og þeirra sem fara eftir orðum þessarar bókrollu. Þú átt að tilbiðja Guð.“+
10 Hann bætti við: „Innsiglaðu ekki spádómsorð þessarar bókrollu því að hinn tiltekni tími er í nánd.
11 Hinn rangláti haldi áfram að gera það sem er rangt og hinn óhreini haldi áfram óhreinu líferni sínu, en hinn réttláti haldi áfram að gera það sem er rétt og hinn heilagi sé áfram heilagur.
12 ‚Ég kem fljótt og hef með mér launin sem ég gef til að gjalda hverjum og einum eftir verkum hans.+
13 Ég er alfa og ómega,*+ hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn.
14 Þeir sem þvo skikkjur sínar+ eru hamingjusamir. Þeir fá aðgang að trjám lífsins+ og fá að ganga um hliðin inn í borgina.+
15 Fyrir utan eru hundarnir* og þeir sem stunda dulspeki og kynferðislegt siðleysi,* morðingjar, skurðgoðadýrkendur og allir sem eru lygarar og elska lygina.‘+
16 ‚Ég, Jesús, sendi engil minn til að vitna fyrir ykkur um þetta, söfnuðinum til gagns. Ég er rót og afkomandi Davíðs+ og morgunstjarnan bjarta.‘“+
17 Andinn og brúðurin+ segja: „Komið!“ og allir sem heyra segi: „Komið!“ Allir sem eru þyrstir komi+ og allir sem vilja drekki ókeypis af vatni lífsins.+
18 „Ég vitna fyrir öllum sem heyra spádómsorð þessarar bókrollu: Ef einhver bætir einhverju við þessi orð+ leggur Guð á hann plágurnar sem skrifað er um í þessari bókrollu.+
19 Og ef einhver fjarlægir nokkur af orðum þessarar spádómsbókar tekur Guð frá honum hið góða sem skrifað er um í henni – hann fær hvorki aðgang að trjám lífsins+ né borginni helgu.+
20 Sá sem vitnar um þetta segir: ‚Já, ég kem fljótt.‘“+
„Amen! Komdu, Drottinn Jesús.“
21 Megi einstök góðvild Drottins Jesú vera með hinum heilögu.
Neðanmáls
^ Sjá viðauka A5.
^ Eða „traust“.
^ Sjá viðauka A5.
^ Eða „a og ö“. Alfa og ómega eru fyrsti og síðasti stafur gríska stafrófsins.
^ Það er, þeir sem stunda það sem er viðbjóðslegt í augum Guðs.
^ Sjá orðaskýringar.