Orðskviðirnir 2:1–22

  • Viska er mikils virði (1–22)

    • Leitaðu að visku eins og földum fjársjóði (4)

    • Skynsemin veitir vernd (11)

    • Hörmulegar afleiðingar siðleysis (16–19)

2  Sonur minn, ef þú tekur við orðum mínumog varðveitir boðorð mín,+   ljáir viskunni eyra+og hneigir hjartað að hyggindum,+   já, ef þú kallar á skilninginn+og hrópar á hyggindin,+   ef þú leitar að þeim eins og silfri+og grefur eftir þeim eins og földum fjársjóðum,+   þá skilurðu hvað það er að óttast Jehóva+og þú kynnist Guði+   því að Jehóva veitir visku,+af munni hans kemur þekking og hyggindi.   Hann varðveitir viskuna handa hinum heiðarleguog er skjöldur hinna ráðvöndu.+   Hann vakir yfir stígum réttlætisinsog verndar veg sinna trúu.+   Þá skilurðu hvað er réttlátt, rétt og sanngjarnt,skilur hverja braut hins góða.+ 10  Þegar viska kemur í hjarta þitt+og þekking gleður sál* þína+ 11  mun skynsemin vaka yfir þér+og hyggindin vernda þig. 12  Það bjargar þér frá vegi hins illa,frá mönnum sem rangsnúa hinu rétta,+ 13  frá þeim sem yfirgefa götur réttlætisinsog ganga á vegum myrkursins,+ 14  frá þeim sem hafa ánægju af vonskuverkum,og gleðjast yfir illsku og spillingu, 15  þeim sem fara hlykkjóttar leiðirog eru svikulir í öllu sem þeir gera. 16  Það bjargar þér frá siðspilltri* konu,frá tælandi orðum siðlausrar* konu+ 17  sem yfirgefur ástvin* æsku sinnar+og gleymir sáttmála Guðs síns. 18  Hús hennar sekkur niður til dauðansog götur* hennar liggja til hinna dánu.+ 19  Enginn sem hefur mök við hana* snýr aftur,né ratar til baka inn á götur lífsins.+ 20  Fylgdu því vegi góðra mannaog haltu þig á stígum hinna réttlátu.+ 21  Hinir réttlátu einir munu búa á jörðinniog hinir ráðvöndu* verða þar áfram.+ 22  En hinum illu verður útrýmt af jörðinni+og svikarar verða upprættir þaðan.+

Neðanmáls

Orðrétt „framandi“. Greinilega konu sem fylgir ekki siðferðisreglum Guðs.
Orðrétt „útlendrar“. Greinilega konu sem er fjarlæg Guði.
Eða „eiginmann“.
Orðrétt „slóðir“.
Orðrétt „gengur inn til hennar“.
Eða „ámælislausu“.