Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

VAKNIÐ! Nr. 1 2024 | Hvað er orðið um virðingu?

Virðing fyrir öðrum er orðin svo fágæt að við tökum sérstaklega eftir því þegar einhver sýnir öðrum virðingu.

Til dæmis sýna margir litla virðingu fyrir foreldrum sínum, öldruðum, lögreglunni, starfsfólki og kennurum. Og dónalegar athugasemdir á samfélagsmiðlum eru stöðugt algengari. Í grein í tímaritinu Harvard Business Review segir að virðingarleysi sé „sannarlega að færast í aukana“. Greinin bætir við að virðingarlaus hegðun sé „tilkynnt í aukunum mæli – og hafi verið það um tíma“.

 

Virðing fyrir öðrum

Skoðaðu hvers vegna virðing fyrir öðrum er mikilvæg og hvernig þú getur sýnt öðrum virðingu.

Virðing fyrir lífinu

Skoðaðu ráð Biblíunnar um hvernig við getum sýnt virðingu fyrir lífi okkar og annarra.

Virðing fyrir fjölskyldunni

Fjölskyldur eru hamingjusamari þegar allir bera virðingu hver fyrir öðrum.

Sjálfsvirðing

Biblían getur hjálpað fólki að byggja upp sjálfsvirðingu og bæta líf sitt.

Hvað er orðið um virðingu?

Lestu greinar um virðingu og hvað Vottar Jehóva gera um allan heim til að stuðla að virðingu fyrir öðrum í samfélaginu.