Haltu áfram að biðja um velþóknun Guðs
Guð gaf mönnunum einstaka gjöf – að geta talað við hann og tjáð honum tilfinningar sínar í bæn. Davíð konungur bað: „Þú, sem heyrir bænir, til þín leita allir menn.“ (Sálmur 65:3) En hvernig getum við beðið þannig að Guð heyri bænir okkar og blessi okkur?
BIDDU EINLÆGRA BÆNA Í AUÐMÝKT
Þegar þú biður til Guðs með þínum eigin orðum geturðu tjáð honum innstu tilfinningar þínar og úthellt hjarta þínu fyrir honum. (Sálmur 62:9) Almáttugur Guð kann að meta einlægar bænir sem koma frá hjartanu.
ÁVARPAÐU GUÐ MEÐ NAFNI
Þó að Guð beri marga titla á hann aðeins eitt eiginnafn. „Ég er Jehóva. * Það er nafn mitt.“ (Jesaja 42:8, Nýheimsþýðingin) Nafnið Jehóva kemur um 7.000 sinnum fyrir í Ritningunni. Margir spámenn ávörpuðu Guð með eiginnafni hans. Abraham sagði: „Drottinn [Jehóva] ... ég tek aftur til máls.“ (1. Mósebók 18:30) Við ættum líka að nota nafn Guðs, Jehóva, þegar við biðjum.
BIDDU Á ÞÍNU TUNGUMÁLI
Guð skilur hugsanir okkar og tilfinningar, sama hvaða tungumál við tölum. Orð hans gefur okkur þetta loforð: „Guð mismunar ekki fólki heldur tekur hann á móti hverjum þeim sem óttast hann og gerir rétt, sama hverrar þjóðar hann er.“ – Postulasagan 10:34, 35.
En til að hljóta blessun Guðs verðum við að gera meira en að biðja. Í næstu greinum er rætt um hvað við verðum að gera.
^ gr. 6 Jehóva er nafn Guðs samkvæmt frummálum Ritningarinnar.