BIBLÍUNÁMSKEIÐ MEÐ KENNARA
Von um bjarta framtíð
Á þessu ókeypis biblíunámskeiði færðu svör við spurningum eins og:
Hvernig get ég fundið hamingju í lífinu?
Taka þjáningar og illska einhvern tíma enda?
Fæ ég einhvern tíma að sjá látna ástvini mína aftur?
Er Guði annt um mig?
Hvernig get ég fengið bænheyrslu frá Guði?
Ókeypis
Biblíunámskeiðið í heild er ókeypis, þar með talið biblíunámsritið Von um bjarta framtíð og biblía ef þig vantar hana.
Hentugt
Hittu kennara annað hvort augliti til auglitis eða í gegnum fjarfundabúnað – hvar og hvenær sem er.
Engin skuldbinding
Þú getur hætt hvenær sem er.
Hvernig fer biblíunámskeiðið fram?
Einkakennari tekur fyrir eitt viðfangsefni í einu og hjálpar þér að sjá hvað Biblían kennir. Með hjálp biblíunámsritsins Von um bjarta framtíð kynnistu boðskap Biblíunnar stig af stigi og lærir hvernig hann getur hjálpað þér. Horfðu á myndbandið eða skoðaðu spurningar og svör um biblíunámskeiðið til að læra meira.
Langar þig að prófa?
Smelltu á hnappinn til að bóka fyrsta tímann á biblíunámskeiðinu.